line

Á ég rétt á bótum?

Taktu prófið til að athuga hvort þú eigir bótarétt vegna slyss

Taka prófið
line

Sérfærðingar í slysamálum

Ráðfærðu þig við sérfræðinga

Slys leiða með ýmsum hætti til tjóns og er réttur fólks til bóta mismunandi. Mikilvægt að leita ráða hjá sérfræðingum sem geta veitt upplýsingar um rétt þinn og til hvaða úrræða hægt er að grípa.

Hafa samband
line

Kynntu þér ferlið

Fortis fylgir þér alla leið

Skref 1
Tilkynning

Mikilvægt er að tilkynna slys sem fyrst til tryggingafélags svo bótaréttur glatist ekki. Lögmenn Fortis aðstoða þig við að tilkynna ef þess er þörf.

Skref 2
Gagnaöflun

Í slysamálum þurfa að liggja fyrir gögn um tjónið, svo sem frá lögreglu, læknum eða öðrum meðferðaraðilum. Lögmenn Fortis sjá um að afla nauðsynlegra gagna.

Skref 3
Mat á afleiðingum

Þegar öll gögn liggja fyrir, er hægt að meta afleiðingar slyssins. Almennt er fyrst hægt að meta þegar ár er liðið frá slysaatviki. Lögmenn Fortis sjá um og aðstoða þig í gegnum matsferlið.

Skref 4
Uppgjör

Lögmenn Fortis senda bótakröfu á grundvelli matsins. Í flestum tilvikum næst samkomulag um bótagreiðslu en í þeim tilvikum þar sem ekki næst samkomulag sjá lögmenn Fortis um málshöfðun.

Svo þakka ég þér kærlega fyrir alla aðstoðina, mér finnst ég hafa verið í góðum höndum 🙂

Takk kærlega sömuleiðis, mjög ánægð með þjónustuna. Mun klárlega mæla með ykkur 🙂

Sæll! Takk kærlega fyrir aðstoðina með málið mitt! Ég er afar þakklát og ég er mjög ánægð með allt sem þið hafið gert fyrir mig!

Sæll, sá innborgunina núna áðan og langaði að þakka innilega fyrir hjálpina! Gleðilega hátíð!

Enginn friður. En mig langar til að þakka ykkur fyrir þetta. Þið standið ykkur frábærlega vel og verklagið til mikillar fyrirmyndar.

Ég vil þakka fyrir góða þjónustu og mæli hiklaust með ykkur. Takk kærlega!

Mig langar að byrja á að þakka þér og öllum þeim sem komu að þessu máli fyrir mig fyrir vel unnin störf. Ég mun klárlega benda á ykkur í framtíðinni og koma til ykkar aftur ef ég þarf á því að halda. Sjóvá lögðu inn hjá mér í gær svo þetta er allt komið. Takk fyrir frábæra þjónustu 😀

line

Fylgir þér alla leið

Fortis

Fortis er rótgróin lögmannsstofa sem hefur verið starfandi frá árinu 1973. Við höfum sérhæft okkur í því að veita einstaklingum ráðgjöf og þjónustu í slysa- og skaðabótamálum en lögmenn okkar og starfsfólk búa að áratuga langri reynslu á því sviði. Við leggjum okkur ávallt fram um að leysa vel úr þínu máli, leyfa reynslu okkar að nýtast þér á öllum stigum málsins svo þú fáir þær bætur sem þú átt rétt á.

Við viljum að þú nýtir þér þekkingu okkar til að hjálpa þér í gegnum erfitt tímabil.

Skoða frekar

Hafðu samband við sérfræðinga Fortis